Í kjallaranum undir Spilavinum leynist eitt stærsta spilasafn landsins, fullt af spilum sem henta alls kyns spilurum. Hvort sem lítil fjölskylda kemur til að spila við börnin sín, vinahópurinn sem vill löng og þung spil, eða félagarnir sem vilja bara létt og góða skemmtun í spilaformi. Í kjallaranum eruð þið líka umkringd einu stærsta spilasafni landsins — sem þið hafið aðgang að og megið nota!
Einnig er þar dásamlegt leiksvæði fyrir yngri börnin, girt af með krúttlegri lítill girðingu. Þar finnst börnunum alltaf gaman að koma og leika sér, hvort sem það er í vel útbúinni versluninni, litla kaffihúsinu eða ísbúðinni.
Hægt er að borga sig inn hverju sinni, en fyrir fólk sem kemur oftar en einu sinni í mánuði og vill njóta afsláttar af veitingum — auk afsláttar í Spilavinum, þá er árskort í Spilakaffi það sem það vantar.
Árskortshafar hafa aðgang að spilasafninu, spilasalnum og leiksvæðinu okkar í heilt ár. 15% afslátt í Spilavinum, og 20% afsláttur af öllum drykkjum í Spilakaffi.
Einnig er hægt að fá árskort fyrir fjölskyldu, sem gildir fyrir tvo fullorðna og 4 börn undir 16 ára aldri.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar